Innherji

For­stjór­i: Kvik­­a kemst von­­and­­i ná­l­ægt því að ná mark­m­ið­­i um arð­­sem­­i í ár

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Það þurfti að hafa mikið fyrir því að halda kostnaði niðri í ljósi mikillar verðbólgu og launahækkana, sagði Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku. Rekstrarkostnaður jókst einungis um eitt prósent milli ára þrátt fyrir verðbólgu og launahækkanir.
Það þurfti að hafa mikið fyrir því að halda kostnaði niðri í ljósi mikillar verðbólgu og launahækkana, sagði Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku. Rekstrarkostnaður jókst einungis um eitt prósent milli ára þrátt fyrir verðbólgu og launahækkanir. Aðsend

Kvika banki kemst vonandi nálægt því að ná markmiði sínu um arðsemi á árinu. „Við erum ánægð með góðan viðsnúning í bankarekstri,“ sagði Ármann Þorvaldsson bankastjóri. Stefnt er á að hleypa af stokkunum 3,5 til fimm milljarða króna framtakssjóði sem  fjárfestir í Bretlandi.


Tengdar fréttir

Bauð tals­vert betur en Ís­lands­banki í bar­áttunni um að kaupa TM

Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM.

Telur að Kvik­a greið­i út um fimmtán millj­arð­a við söluna á TM

Söluverð Kviku á TM var í samræmi við væntingar hlutabréfagreinenda sem telur að Kvika verði „sterkari“ eftir söluna en segir slæmt að fjárþurfa ríkissjóður sé með þessum kaupum Landsbankans að „dæla peningum inn í hagkerfið með vinstri hendinni.“ Sjóðstjóri reiknar með að Kvika muni greiða út um fimmtán milljarða samhliða sölunni í formi arðgreiðslna eða endurkaupum á eigin bréfum og hluthafar fái því ríflegan hluta söluverðsins til sín.

Kvika ræðst í hag­ræðingu og segir upp á annan tug starfs­manna

Innan við einum mánuði eftir innkomu Ármanns Þorvaldssonar sem nýs bankastjóra Kviku hefur bankinn ráðist í uppsagnir þvert á svið samstæðunnar. Stöðugildum innan bankans var þannig fækkað um liðlega fjögur prósent í aðgerðum dagsins í dag sé tekið mið af heildarstarfsmannafjölda félagsins, samkvæmt upplýsingum Innherja. 

For­stjór­i Kvik­u mun ekki hafa frum­kvæð­i að sam­ein­ing­u við stór­an bank­a

Nýr bankastjóri Kviku hefur ekki hug á því að endurvekja samrunaviðræður við Íslandsbanka og telur að sameining við einn af stóru bönkunum myndi kalla á yfirtökuálag fyrir hluthafa Kviku miðað við núverandi markaðsgengi eigi það að vera raunhæfur kostur, segir hann í viðtali við Innherja. Bankinn mun í framhaldinu jafnframt ekki eiga frumkvæði að því að skoða viðræður við Arion eða VÍS en forstjóri Kviku segist vilja fara í öfluga samkeppni við stóru viðskiptabankanna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×